Hersir frá Húsavík
IS2015166640 | Jarpur
Bygging: 8,82
Hæfileikar: 8,34
Aðaleinkunn: 8,51
1 Verðlaun
Hersir er mjög stór, óvenjulega vel gerður stóðhestur í hæsta gæðaflokki hvað varðar byggingu og ber þar hæst 9,5 fyrir háls. Að auki er hann með 9 fyrir samræmi og hófa.
Gangtegundir hans einkennast af mikilli skrefstærð og fótaburði, og rýmdin er mikil ásamt mýkt og léttleika í hreyfingum. Hersir er einn hæst dæmdi hestur ársins sem klárhestur, og með sínum myndarskap er hann frábær kostur fyrir hrossaræktendur.
Heildarverð á tolli undir Hersi er 130.000 krónur og innifalið í því er þjónustugjald
Hér má finna samning sem þarf að fylla út fyrir hryssur sem koma undir Hersi. Það má gera í Holtsmúla við komu hryssunnar.
Myndband
Kynbótadómur
Sköpulag | |
---|---|
Höfuð | 8,5 |
Háls/herðar/bógar | 9,5 |
Bak og lend | 8,0 |
Samræmi | 9,0 |
Fótagerð | 8,5 |
Réttleiki | 8,5 |
Hófar | 9,0 |
Prúðleiki | 8,5 |
Hæfileikar | |
---|---|
Tölt | 9,0 |
Brokk | 9,0 |
Skeið | 5,0 |
Stökk | 9,0 |
Vilji og geðslag | 9,0 |
Fegurð í reið | 9,0 |
Fet | 8,5 |
Hægt tölt | 8,5 |
Hægt stökk | 9,0 |
Sköpulag | 8,82 |
---|
Hæfileikar | 8,34 |
---|
Aðaleinkunn 8,51
Ættartré
- Arður Brautarholti
- Kjalvör Efri-Brú
- Orri Þúfu
- Urð Hvassafelli
Hersir
Húsavík