Blika frá Holtsmúla 1
IS2012281097 | Moldótt
Hún er gullfalleg þessi, afar háfætt, hlutfallarétt, og hálsinn langur, bogadreginn og grannur.
Hreyfingarnar eru háar og skrefmiklar, og hún fer mikið um á brokki en sýnir töluvert tölt. Gæti verið efni í mjög flotta klárhryssu því hún er eftirtektarverð fyrir fjaðurmagnið og fótaburðinn.