.JPG&ext=jpg&w=200&h=150) |
|
Úðrað í sig
|
.JPG&ext=jpg&w=200&h=150) |
|
Heyinu velt út til að allir komist að
|
.JPG&ext=jpg&w=200&h=150) |
|
Gott að lúlla í heyinu
|
Verð á fóðrun hrossa
Úrvalshestar bjóða upp á fóðrun hrossa. Við leggjum metnað okkar í að hrossunum líði vel, hafi nóg að bíta og brenna og séu hæfilega mörg saman í passlega stórum beitarhólfum. Verð er mismunandi eftir því hvort um stóðhesta eða önnur hross er að ræða, og einnig eftir því hversu lengi hrossin dvelja. Heils árs fóðrun skal greiða fyrirfram, hálft ár í senn. Fóðrun skv. mánaðargjaldi skal greidd fyrirfram fyrir hvern mánuð. Hross sem eru hér á mánaðargjaldi eru ormahreinsuð reglulega haust og vor (og oftar ef þurfa þykir), og ber eigandi kostnað af því. Úrvalshestar geta farið fram á tveggja daga fyrirvara til að smala hrossum til afhendingar. Öll verð eru gefin upp fyrir utan virðisaukaskatt.
Fóðrun á hryssum og geldhrossum eldri en eins vetra
Heils árs fóðrun 90.000 / ári
Innifalið: Beit, heygjöf og steinefnagjöf eftir
þörfum, frjáls aðgangur að fersku vatni og salti.
Sprautað árlega gegn lús og ormum, ormalyfsgjöf
að auki í munn eftir þörfum. Reglubundið eftirlit.
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 1. des - 1. júní 15.000 / mán
Innifalið: Heygjöf og beitiland eftir þörfum,
frjáls aðangur að fersku vatni og salti.
Reglubundið eftirlit.
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 1. júní - 30. nóv 5.000 / mán
Innifalið: Beit, ferskt vatn og salt eftir þörfum.
Reglubundið eftirlit.
Fóðrun á stóðhestum
Heils árs fóðrun 140.000 / ári
Innifalið: Beit, heygjöf og steinefnagjöf eftir
þörfum, frjáls aðgangur að fersku vatni og salti.
Sprautað árlega gegn lús og ormum, ormalyfsgjöf
að auki í munn tvisvar á ári. Reglubundið eftirlit.
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 1. nóv - 15. júní 16.000 / mán
Innifalið: Heygjöf og beitiland eftir þörfum,
frjáls aðangur að fersku vatni og salti.
Reglubundið eftirlit.
Fóðrun skv. mánaðargjaldi 15. júní - 31. okt 2008 12.000 / mán
Innifalið: Beit, ferskt vatn og salt eftir þörfum.
Reglubundið eftirlit.
Athugið að varðandi fóðrun allra hrossa er ekki innifalinn sá dýralækniskostnaður sem ekki telst vera þáttur í reglubundinni umhirðu hrossins, svo sem vegna slysa eða veikinda. Eigandi ber allan dýralæknakostnað sem kann að verða af þeim orsökum. Úrvalshestar áskilja sér rétt til að breyta þessari verðskrá fyrirvaralaust vegna breytinga á verði aðfanga.