Styrkur frá Kjarri

IS2006187003 | Móálóttur

Mjög mikið og vel taminn reið- og keppnishestur, hágengur hestur sem virkar vel í fjórgang og tölt.

Styrkur hefur hreinar gangtegundir og brokkið er svifmikið og stórt.  Hann hefur frábært geðslag, er auðveldur í reið en viljugur að vinna.  Hann kann mikið af fimiæfingum, til að mynda krossgang, opinn og lokaðan sniðgang á feti, brokki og tölti.  Fram- og afturfótasnúningur er ekkert mál og því er þessi hestur algerlega frábær til að læra af, nota í keppni og njóta í almennri reið.   

Selt


Myndband

Ættartré

  • Galsi Sauðárkróki
  • Jónína Hala
  • Orri Þúfu
  • Nunna Bræðratungu
  • Stáli Kjarri
  • Auðna Kjarri
Styrkur Kjarri