Askja frá Þúfu

IS2001284556 | Brún

Bygging: 7,98
Hæfileikar: 8,17
Aðaleinkunn: 8,09

1 Verðlaun

Askja er léttbyggð og fótahá, með langan grannan háls. Hún er jöfn og góð alhliða hryssa sem er komin góð reynsla á í gegnum afkvæmi. Búið er að dæma tvö í góð fyrstu verðlaun og mörg efnileg eru í uppvexti.

Öskju keyptum við frá Þúfu fjögurra vetra gamla, þá fylfulla við Orra frá Þúfu. Við höfum verið afskaplega heppin með þessa hryssu, fengum undan henni gullfallegt merfolald og eftir þjálfun veturinn á eftir sýndi Þórður Þorgeirsson hana fyrir okkur í fyrstu verðlaun. Hryssunni var reyndar riðið sem klárhryssu allan veturinn, og voru Magnús og Þórður, þjálfarinn og sýnandinn alveg sammála um það að hér væri rakin klárhryssa á ferðinni og vonandi að einhverjar níur sæjust fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. En viti menn, í sýningunni setti hryssan bara í skeiðgírinn, fór í 7,5 fyrir skeið í fordómi og nú var Þórður búinn að finna fimmta gírinn og í sínum öðrum spretti á ævinni, þ.e. í yfirliti gerði Askja sér lítið fyrir og hækkaði í 8,5. Níurnar fundust hins vegar ekki í þessari sýningu!  Askja er sem sagt klárhryssa með skeiði, og sú lýsing passar henni mjög vel. Hún er hágeng, glæsileg í framgöngu og ekki spillir fyrir glæsileg líkamsbygging sem einkennist af léttri byggingu og mikilli reisingu á vel löguðum hálsi.

Í eigu Úrvalshesta


Myndasafn

Kynbótadómur

Sköpulag
Höfuð 8,0
Háls/herðar/bógar 8,5
Bak og lend 8,0
Samræmi 8,5
Fótagerð 7,0
Réttleiki 8,0
Hófar 7,5
Prúðleiki 7,5
Hæfileikar
Tölt 8,0
Brokk 8,0
Skeið 8,5
Stökk 8,0
Vilji og geðslag 8,5
Fegurð í reið 8,0
Fet 7,5
Hægt tölt 8,0
Hægt stökk 8,0
Sköpulag 7,98
Hæfileikar 8,17

Aðaleinkunn 8,09

Ættartré

  • Hervar Sauðárkróki
  • Krafla Miðsitju
  • Freymóður Efsta-Dal
  • Gjöf Þúfu
  • Kraflar Miðsitju
  • Skeifa Þúfu
Askja Þúfu