Stóðhesta- og sónarfréttir

3. október, 2014

Búið er að taka alla stóðhestana, þ.e. Eld frá Torfunesi, Narra frá Vestri-Leirárgörðum, og Trymbil frá Stóra-Ási úr hryssuhópum sínum hjá Úrvalshestum, og verða allar hryssur sónaðar í kringum 15. október.  Nánari dagsetning auglýst síðar.  Við biðjum alla eigendur hryssa hjá okkur að koma og sækja sínar hryssur þennan dag.  Við munum, eins og áður segir, auglýsa þetta aftur eftir u.þ.b. viku.

Á myndinni er Trymbill frá Stóra-Ási, vakandi yfir sínu stóði

Stóðhesta- og sónarfréttir