Sónum frá Vökli frá Efri-Brú þriðjudaginn 4. ágúst

27. júlí, 2015

Glæsihesturinn Vökull frá Efri-Brú hefur haft mikið að gera í sumar og hólfið hjá honum hefur verið fullt.  Nú gefst tækifæri til að bæta inn hryssum hjá honum þegar við sónum, en það munum við gera þriðjudaginn 4. ágúst.

Þeir sem eiga hjá honum hryssur eru beðnir um að vera tilbúnir að sækja fengnar hryssur, en þær sem ekki er hægt að staðfesta í munu verða áfram hjá honum.  Við hringjum í þá sem eiga fengnar hryssur.  Vinsamlega hafið í huga að það þarf að gera upp allan kostnað áður en hryssur eru sóttar, og má leggja inn upphæðina sem er 154.000 á fengna hryssu inn á þennan reikning:

Banki 0308 - 26 - 102610
Kt. 660702 - 2610
Eigandi reiknings er Úrvalshestar ehf.

Hér eru upplýsingar um Vökul, dómur og myndir.

 

 

Sónum frá Vökli frá Efri-Brú þriðjudaginn 4. ágúst