Litlu jólin í Holtsmúla
19. desember, 2013
Það var mikið stuð á litlu jólunum í Holtsmúla, en þau voru haldin í gær 18. desember og byrjuðu á því að verknemarnir kepptu í innanhússþrautakeppni. Þessar stelpur lögðu sig allar í þetta og greinilegt var að áhuginn og keppnisskapið voru til staðar. Þær stilltu upp þrautabraut inni í reiðhöllinni og svo voru farnar tvær umferðir, þar sem Svanhildur og Magnús voru einungis auðmjúkir dómarar og tímaverðir. Í fyrr umferðinni höfðu fáguð reiðmennska og stíll allt að segja, en svo voru hælarnir heldur betur settir í hestana því ekkert taldi nema sekúndurnar í síðari umferð. Allt var lagt undir, og miklar æfingar höfðu staðið yfir undanfarna daga. Sumir skiptu um hesta milli umferða og ég held að þær hafi verið búnar að prófa ansi margar þar til niðurstaða fékkst í málið um það hvaða hestar fengu þetta mikilvæga hlutverk að vera keppnishestur þennan dag. Svo var haldið heim og borðaður hátíðarmatur við kertaljós og spjallað fram eftir kvöldi.
Á myndinni stilla þær sér upp, Silje frá Noregi á Djásn frá Holtsmúla, Anni frá Svíþjóð sem sigraði báðar umferðir á Blá frá Holtsmúla, og Stina van der Maaten á Freydísi frá Skeiðvöllum. Fleiri myndir eru hér.
Hér er stutt video frá fyrri umferðinni, Blá og Anni eru hér á ferð, en það hafði enginn tíma til að taka upp í seinni umferð.......