Hestar til sölu í nóvember

20. nóvember, 2015

Frá og með 15. nóvember bjóðum við upp á eitt nýtt hross til sölu á hverjum degi út mánuðinn.  Þetta verða hross á öllum aldri, af mismunandi gæðum, kyni og ætterni.  Öll hrossin eiga það þó sameiginlegt að vera öðruvísi á litinn heldur en brún, rauð, eða jörp.

Vel má vera að eitt og eitt brúnt, rautt eða jarpt fái að fljóta með, en þessa daga, frá 15. til 30. nóv verður kynnt hross dagsins á hverjum degi, endilega fylgist með hér á síðunni.

Einnig ætlum við að hafa sérstakt tilboð á ódýru en vel ættuðu hrossi á föstudögum, en laugardagar verða fráteknir fyrir eitthvað sérstakt hvað varðar framúrskarandi gæði.  Í dag er föstudagur, og hryssan Ása frá Holtsmúla er hross dagsins, hún er á þriðja vetur, og er til sölu á aðeins 250.000 krónur.

Kíkið hér til að sjá söluhrossin.

Hestar til sölu í nóvember