Gleðilegt nýtt ár

1. janúar, 2015

Við óskum vinum og viðskiptamönnum okkar farsældar á þessu nýja ári 2015 og hlökkum til að upplifa nýja og spennandi hluti í hrossaræktinni og hestamennskunni með ykkur.  

Myndin er af henni Rödd frá Holtsmúla, en hún ein af hrossunum til sölu á sölusíðunni okkar.  Ætlunin er að gefa hressilega í og bæta þar mikið við úrvalið á næstu dögum.  Vonumst eftir tíðum heimsóknum ykkar kæru vinir bæði í Holtsmúlann og á heimasíðuna okkar.

Gleðilegt nýtt ár