Fyrsta mót vetrarins

1. febrúar, 2014

Þær Edda og Berglind eru enn í pollaflokki og voru ekki lítið ánægðar með verðlaunin sín eftir að hafa sýnt sig nokkra hringi í reiðhöllinni á Hvolsvelli.  Foreldrarnir voru trúlega ekki minna stoltir þar sem þeir örkuðu við hlið dætranna, en svo drifu Svanhildur og Anni verknemi sig í áhugamannaflokkinn þar sem Svanhildur fór í úrslit á Freyju frá Enni, efnis tölthryssu sem er samt lítið gerð ennþá.  Skemmtilegur dagur og frábært veður miðað við árstíma.

Á myndinni eru Berglind María á Djásn frá Holtsmúla og Edda Margrét á Blá frá Holtsmúla

Fyrsta mót vetrarins