Eftirlit með stóðinu
27. nóvember, 2014
Það saxast á haustverkin þessa dagana, enda búið að vera allt á fullu í þeim. Fyrst og fremst eru það smalamennskur. Það þarf að reka öll hrossin heim úr sumarhögum, og flokka svo stóðið eftir aldri og holdafari. Við erum búin að skipta þeim upp í fjöldamarga hópa svo að auðvelt sé að fylgjast með þeim. Flest hrossin eru enn svo feit og pattaraleg að það er engin þörf á heygjöf næstum því strax ef veðrið verður áfram jafn gott og verið hefur undanfarið. Folaldshryssurnar eru hins vegar eru komnar allar heim að bæ og nokkrar þeirra komnar á gjöf. Við erum búin að gefa yfir tvö hundruð hrossum orma- og lúsalyf. Það ættu því allir að vera vel settir fyrir veturinn. Tamningarnar eru í fullum gangi, troðfullt hesthús af tamningatryppum sem fara skemmtilega af stað, og búið að taka inn eldri hross sem fara í framhaldsþjálfun.
Á myndinni er hún Sandra dýralæknir frá Dýralækni Sandhólaferju að munda sprautuna með ormalyfinu