• Forsíða
  • Pistlar
  • Fréttir
  • Hestar til sölu
  • Reiðhestar
  • Keppnishestar
  • Ræktunarhross
  • Hrossarækt
  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Tryppi
  • Tamningar og þjálfun
  • Fortamningar / unghrossamat
  • Frumtamningar
  • Þjálfun
  • Myndasöfn
  • Kennsla
  • Verknám
  • Reiðkennsla
  • Hnakkar til sölu
  • Um okkur
  • Magnús Lárusson
  • Svanhildur Hall
  • Heimasæturnar
  • Verðskrá
  • Tamningar
  • Fóðrun
  • Kennsla
  • Hafa samband
  • Alfur_fra_selfossi
Íslenska Íslenska  English
PrentaStór leturstærð Eðlileg leturstærð Leita
Forsíða >>  Alfur_fra_selfossi

                                     Álfur frá Selfossi

Þessi frábæri gæðingur verður til afnota fyrir hryssueigendur í Holtsmúla frá og með 30. júní og út sumarið.  Álf þarf vart að kynna fyrir hrossaræktendum enda hefur hann margoft komið fram og hvarvetna vakið hrifningu og aðdáun fyrir aðsópsmikla framgöngu og framúrskarandi gangtegundir sem klárhestur.  Álfur er óvenju geðgóður, hágengur og liðugur hestur með tölt og brokk í hæsta gæðaflokki.  Eigandi Álfs er hin norska Christina Lund, og eru allar líkur á því að þetta sé jafnvel síðasta sumarið sem okkur Íslendingum stendur til boða að halda undir hestinn áður en hann hverfur á nýjar heimaslóðir sem verða í Noregi í framtíðinni. 

Álfur verður í stórri og grösugri girðingu þar sem daglegt eftirlit er viðhaft.

Hryssur á fyrra gangmál eiga að mæta 28. júní, hesturinn verður settur í 30. júní.  Seinna gangmál hefst 4. ágúst.  Hugsanlega er hægt að bæta hryssum inn í hólfið ef þannig stendur á.

Fyrir allar frekari upplýsingar vinsamlega hafið samband.

Verð á folatolli er 270.000, innifalið hagaganga, einn sónar og vsk.

 

 

 

 

 

© Úrvalshestar | Holtsmúli I  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM Svanhildur Hall: 659 2237 | GSM Magnús Lárusson: 659 2238 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is | English
Nýjar myndir
Spá frá Holtsmúla Ósk frá Holtsmúla
Blá frá Holtsmúla Auður frá Holtsmúla
Álfur frá Selfossi
Tamningar og þjálfun
Hnakkar til sölu