|
Svanhildur Hall svanhildur@urvalshestar.is
Svanhildur er uppalin með malbik undir báðum fótum á Seltjarnarnesi, en var alltaf með hestadellu sem aðrir fjölskyldumeðlimir áttu erfitt með að skilja hvaðan kom. Þetta vatt stöðugt upp á sig, fyrst með sakleysislegum reiðnámskeiðum, þá hestakaupum fyrir fermingarpeningana, og loks námi á Hólaskóla eftir stúdentinn. Skýringin (réttlætingin?) á því var sú að Svanhildur þyrfti að “leika” sér í hestamennskunni þar í eitt ár meðan hún velti því fyrir sér hvort hún ætlaði frekar í verkfræði eða tölvunarfræði við Háskóla Íslands. En það var ekki aftur snúið úr hestunum eftir Hólaveruna, Svanhildur fór til Bandaríkjanna og kláraði þar afar áhugavert nám, B.Sc. gráðu í hrossarækt þar sem tekið var á nánast öllu í sambandi við hross, æxlunarfræði, lífeðlisfræði, fóðurfræði, hegðun, og síðast en ekki síst komst hún í keppnislið skólans í Dressage (fimikeppni á hestum) og var því svo heppin að kynnast og vera þjálfuð af frábærum reiðkennurum. Að auki var boðið upp á valáfanga sem hún var dugleg að taka eins og fimiæfingar, hindrunarstökk o.fl. Áhugi Svanhildar sveigðist fljótt inn á þá braut að rannsaka meira hegðun hrossa, og þá sérstaklega hvort og þá hvernig hægt væri að meta skapgerð hrossa með tilliti til námshraða og þar af leiðandi hversu hratt væri hægt að temja þau. Svanhildi var boðinn námsstyrkur við Auburn háskóla í Alabama og tók þar Mastersgráðu við búfjárræktardeildina. Rannsóknarefnið var einmitt um það hvernig hægt væri að meta skapgerð hrossa. Eftir að Svanhildur kom heim starfaði hún fyrst sem kennari í hrossarækt og skyldum fögum við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Seinna fluttist hún að Gauksmýri í Húnaþingi vestra þar sem hún rak ásamt Magnúsi og fleirum Hestamiðstöð. Haustið 2003 fór Svanhildur aftur að Hvanneyri og gegndi lektorsstöðu í hrossarækt í tvö ár, en flutti þá í Neðra-Sel í Landsveit og rak þar alhliða hestamiðstöð með áherslu á hrossarækt, tamningar og kennslu. Það var svo loksins árið 2008 að Svanhildur og Magnús kaupa Holtsmúla I, og eignast þar með jörð til að byggja upp sína drauma vinnuaðstöðu og stunda sína hrossarækt og aðra hrossavinnu. Svanhildur er virkur dómari, og er með landsdómararéttindi í hestaíþróttadómum auk þess að vera með alþjóðleg kynbótadómararéttindi. |
 Svanhildur Hall
 Svanhildur og fyrsti hesturinn, Ljúfur
 Svanhildur í reiðkennslu í USA
 Uppdressuð og fín á Alec, keppnishesti sínum í hestaíþróttaliði Oregon State University
 Keppnislið OSU í dressúr (ath, 6 stúlkur) ásamt þjálfara sínum
 Svanhildur tekur við hamingjuóskum frá rektor við útskrift
 Svanhildur og Kráka
 Aftur á Kráku
 Svanhildur með nemendum sínum á Hvanneyri á Skeifudeginum
|