|
Edda Margrét Magnúsdóttir fæddist 8. janúar 2006. Hún er fyrsta barn móður sinnar og þriðja barn föður síns, en augasteinn beggja. Hún dafnar vel, sefur vært allar nætur og borðar strax innan við eins árs allan mat, t.d. hákarl, svið og harðfisk. Hún sýnir ágæta tilburði til að verða hestamanneskja a.m.k. ef marka má brosið þegar hún kemst í nánd við hross. Tveggja mánaða var Edda Margrét farin að máta hnakkinn og er þar að auki búin að flækjast í hestaferðir, annað hvort í bílnum ef að mamma og pabbi eru ríðandi, eða þá með þeim í bílnum þegar þau eru að flytja hross, kaupa hross eða heimsækja hestafólk. Því hefur verið fleygt að Edda Margrét sé mjög há í ráðunauta- og dómarabluppi, en tíminn verður að leiða í ljós hvað framtíð hennar ber í skauti sér, rétt eins og með annað ungviði.
Berglind María Magnúsdóttir kom svo með látum á jarðskjálftadaginn mikla 29. maí 2008. Hún er algert ljósrit af systur sinni enda ekki leiðum að líkjast. Berglind er glaðvært og yfirvegað barn, en of snemmt er að segja til um yfirleitt nokkuð annað. Hún er jú bara í því að sinna grunnþörfunum ennþá meðan Pabbi og Mamma velta því stundum fyrir sér hvort að hestamennskan muni rúmast fyrir innan áhugasviðsins seinna meir.
.JPG&ext=jpg&w=120&h=80) Berglind María og eitt af fyrstu brosunum
.JPG&ext=jpg&w=120&h=80) Berglind vel með á nótunum á skírnardaginn 25. des
.jpg&ext=jpg&w=120&h=98) Berglind í fanginu Á Baldri afa
.JPG&ext=jpg&w=120&h=80) ... og Ömmu Eddu
|
 Edda Margrét og pabbi
 Edda Margrét flottust ..
 að kúra með pabba...
 snemma farið með í hestaferðir í bílnum...
 og jafnvel í utanlandsferðir, með mömmu á leið til USA
 er maður ekki sætur :)
|