• Forsíða
  • Pistlar
  • Fréttir
  • Hestar til sölu
  • Reiðhestar
  • Keppnishestar
  • Ræktunarhross
  • Hrossarækt
  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Tryppi
  • Tamningar og þjálfun
  • Fortamningar / unghrossamat
  • Frumtamningar
  • Þjálfun
  • Myndasöfn
  • Kennsla
  • Verknám
  • Reiðkennsla
  • Hnakkar til sölu
  • Um okkur
  • Magnús Lárusson
  • Svanhildur Hall
  • Heimasæturnar
  • Verðskrá
  • Tamningar
  • Fóðrun
  • Kennsla
  • Hafa samband
  • Alfur_fra_selfossi
Íslenska Íslenska  English
Senda fyrirspurnPrentaStór leturstærð Eðlileg leturstærð Leita
Forsíða >>  Um okkur

Úrvalshestar ehf
Holtsmúli I, 851 Hella 
Sími: 451 2237 GSM: 659 2237
Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is  

Úrvalshestar er fyrirtæki í eigu Magnúsar Lárussonar og Svanhildar Hall. Það starfrækir tamningastöð og hrossarækt ásamt annarri starfsemi tengdri hrossum að Holtsmúla I í Landsveit, um hálftíma akstur fyrir austan Selfoss.

Í Holtsmúla búa þau Magnús og Svanhildur ásamt dætrum sínum Eddu Margréti, sem er fædd 8. janúar 2006, og Berglindi Maríu sem fæddist 29. maí 2008. Einnig búa að jafnaði 3 verknemar á staðnum sem koma í starfsnám til að læra vinnubrögð í frumtamningum, reiðmennsku og öðru tengdu hestamennsku.

Í Holtsmúla er fjöldi hrossa, um 30 hryssur í folaldseign og fjöldi unghrossa í uppvexti auk um 40 hrossa á járnum. Hrossaræktin okkar er ung, elsti árgangurinn telur aðeins 5 tryppi sem fæddust árið 2001. En hrossaræktin fer ört vaxandi og er orðin viðamikil í samræmi við það. Hesthúsið telur um fjörtíu pláss, í eins og tveggja hesta stíum. Áföst því er reiðskemma sem er 22 x 14 metrar á kant.

Við bjóðum þig velkomna / velkominn að sækja Holtsmúla heim og kynnast okkur og starfsemi Úrvalshesta.

 


Hesthúsið og reiðskemman í Holtsmúla á köldum en fallegum vetrardegi
 

© Úrvalshestar | Holtsmúli I  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM Svanhildur Hall: 659 2237 | GSM Magnús Lárusson: 659 2238 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is | English
Nýjar myndir
Röskva frá Guðnastöðum Yrsa frá Guðnastöðum
Lilja frá Holtsmúla Andri frá Neðra-Seli
Álfur frá Selfossi
Tamningar og þjálfun
Hnakkar til sölu