 Auður frá Neðra-Seli |
Auður frá Neðra-Seli, rauðstjörnótt glófext IS2003281101 F: Forseti frá Vorsabæ II FF: Hrafn Holtsmúla FM: Litla – Jörp Vorsabæ II M: Assa frá Hólum MF: Kolfinnur Kjarnholtum MM: Kría Lækjamóti
Auður er mjög stór og falleg. Það sem einkennir útlitið er fínlegur háls sem er hátt settur og langur, og mikil fótahæð. Bolurinn er einnig sívalur og jafn. Auður er sennilega klárhryssa og notar brokkið mest.
|
 Erró frá Neðra-Seli |
Erró frá Neðra-Seli, brúnskjóttur IS2003181104 F: Víkingur frá Voðmúlastöðum FF: Sögublesi Húsavík FM: Dúkka Voðmúlastöðum M: Erna frá Neðra-Seli MF: Hamur Laugarvatni MM: Kría Lækjamóti
Erró er feikna stór og myndarlegur hestur. Hann notar brokkið mest en töltið er laust. Skrefið er langt og skapgerðin þannig að hann temst hratt og hefur gaman af samneyti við manninn. Þetta verður að öllum líkindum mikið rúmur klárhestur með tölti.
|
 Framtíð frá Neðra-Seli |
Framtíð frá Neðra-Seli, brún IS2003281100 F: Skorri frá Gunnarsholti FF: Orri Þúfu FM: Skrugga Kýrholti M: Fjöður frá Vogsósum MF: Galsi Sauðárkróki MM: Dúfa Snjallsteinshöfða 1
Framtíð er flott klárhryssa, með mikið jafnvægi á gangtegundum og háan fótaburð. Hún er sterkleg og reist, en smá. Skapið er skemmtilegt, hún er lífleg og kjörkuð. Eigandi er Hermann Gunnlaugsson.
|
|
.JPG&ext=jpg&w=200&h=150) Karri frá Neðra-Seli
|
Karri frá Neðra-Seli, jarpskjóttur IS2003181100 F: Forseti frá Vorsabæ II FF: Hrafn Holtsmúla FM: Litla – Jörp Vorsabæ IIi M: Kría frá Lækjamóti MF: Hervar Sauðárkróki MM: Sokka Lækjamóti
Karri er stór og þroskaður foli og fer um á brokki með miklum fótaburði eins og flest hans systkini. Hann er reistur og lofthár og einstaklega geðgóður foli. Lundarfarið er yfirvegað og hann er kjarkaður en blíður. Karri er ógeltur.
|
 Kraftur frá Neðra-Seli |
Kraftur frá Neðra-Seli, brúnn IS2003181103 F: Númi frá Þóroddsstöðum FF: Svartur Unalæk FM: Glíma Laugarvatni M: Kráka frá Hólum MF: Orri Þúfu MM: Kría Lækjamóti
Kraftur er heillandi foli, sérlega framfallegur og mikið fextur. Hann fer um á öllum gangi og er spennandi efni í alhliða gæðing. Kraftur er ógeltur. Núverandi eigandi er Hermann Gunnlaugsson.
|
 Reisn frá Neðra-Seli |
Reisn frá Neðra-Seli, móvindótt IS2003281110 F: Kveikur frá Miðsitju FF: Gustur Sauðárkróki FM: Perla Reykjum M: Píla frá Þórukoti MF: Glæsir Finnmörk MM: Trissa Þórukoti
Við fengum Pílu lánaða til að eignast undan henni folald og vorum svo heppin að fá vindótta hryssu. Reisn er eftirtektarverð fyrir myndarskap, en hún er stór og lappalöng. Reisn verður örugglega alhliða hryssa, hún sýnir allan gang hreinan og er spennandi hryssa.
|
 Tign frá Neðra-Seli |
Tign frá Neðra-Seli, jörp IS2003281111 F: Gári frá Auðsholtshjáleigu FF: Orri Þúfu FM: Limra Laugarvatni M: Una frá Kvíabekk MF: Steinn Húsavík MM: Stjarna Kvíabekk
Tign er afar falleg hryssa enda undan hæst dæmda stóðhesti heims fyrir byggingu. Hún er fótlöng og háreist, með háar herðar og ætti því ekki að vera í vandræðum með að bera sig vel. Tign sýnir allan gang og er efnileg alhliða hryssa bæði hvað varðar útlit og hæfileika.
|