13. desember 2009 | Pistill
Ég tapaði!
Ég fór á folaldasýningu í Rangárhöllinni í gær með mínum betri helming ásamt yngsta erfingjanum. Við tókum þátt í sýningunni með eitt af ræktunarstoltum árins í formi hestsfolalds. Við töpuðum því allt annað en fyrsta sætið er tap.
Ég er fúll y...
Meira | Umræður(0)
|
18. maí 2009 | Pistill
Vinur eða leiðtogi
“Já, en hann er vinur minn og ég vil hafa hann þannig áfram” sagði vinkona mín ein ákveðinni röddu. Hún var á sínu fyrsta námskeiði hjá mér og umræðan í byrjun þess var, eins og venja er, um hvort það væri eitthvað sem þátttakendur vildu bæta í sam...
Meira | Umræður(0)
|
4. maí 2009 | Pistill
Sjálfsöryggi
Stefnt er að því í frumtamning hests að temjari gerist leiðtogi hans. Leiðtogahlutverki er náð þegar hestur treystir og virðir temjara sinn. Traust sýnir hestur m.a. með því að hann leyfir temjara sínum að ná sér og strjúka sér hvar sem er um skrokk...
Meira | Umræður(0)
|
9. febrúar 2009 | Pistill
Ósætti
“Hefur þú rifist við einhvern og þið skilið ósáttir” spurði minn reiðmeistari. Við stóðum við hest sem hann var nýbúinn að fá í þjálfun. Eigandi hestsins hafði m.a. lýst hestinum sem frekum, stífum í taumum, stirðum til hliða og alltaf að flýta sé...
Meira | Umræður(0)
|
22. janúar 2009 | Pistill
Að skella saman skoltum
“Hvaða hljóð er þetta sem hesturinn gefur frá sér?” spurði ég reiðkennarann minn og benti í laumi á umræddan hest niðri á vellinum. Við sátum uppi í áhorfendastúkunni og biðum eftir því að kennslustundinni lyki hjá hópnum sem var á undan okkur. “He...
Meira | Umræður(0)
|
3. janúar 2009 | Pistill
Lesa hestar hugsanir?
“Mr Larusson, telur þú að hestar lesi hugsanir manna” spurði amerísk hestakona mig í lok fyrirlesturs um hesta fyrir nokkrum árum. “Ég ætla ekki að útiloka það, en ég tel að það gerist ekki eins oft og sumir vilja vera láta” svaraði ég með von í brj...
Meira | Umræður(0)
|
3. janúar 2009 | Pistill
Nokkur orð um þolþjálfun
“No pain, no gain” var yfirskrift þjálfunaraðferða íþróttamanna vel fram yfir miðja síðustu öld. Því var trúað að framfarir íþróttamanna yrðu litlar sem engar nema viðkomandi píndi sig áfram við æfingar. Að herða íþróttamanninn upp frá fyrsta degi ...
Meira | Umræður(0)
|
6. desember 2008 | Pistill
Að stíga brokk
“Sittu kyrr á hestinum” sagði stórknapinn hvasst við útlenska vinkonu mína. Þau voru á sitt hvorum hestinum á útreiðum. Hann reið á einum af mörgum keppnishestum, sem voru í þjálfun hjá honum. Hún reið hins vegar á lítið tömdu trippi, sem var óörug...
Meira | Umræður(0)
|
18. nóvember 2008 | Pistill
Að tala íslensku á Landsmóti
“Pabbi, er þetta rétt sem þulurinn sagði?” spurði sonur minn, sem lauk samræmdum prófum 10. bekkjar í vor. Við sátum í áhorfendabrekkunni á Landsmótinu og horfðum saman á kynbótadómana. “Nú, hvað sagði hann?” hváði ég og áttaði mig ekki á því í hve...
Meira | Umræður(0)
|
18. nóvember 2008 | Pistill
Half halt
“Mr. Lárusson. Þegar þú kemur að næsta horni þá byrjar þú að gefa half halt og gerir það í hverju skrefi á meðan þú ríður hornið” glumdi í reiðhöll Ríkisháskólans í Oregon fyrir rúmum áratug. Þegar hornið var að baki glumdi aftur. “Mr. Lárusson. É...
Meira | Umræður(0)
|
17. júní 2008 | Pistill
Útgeislun
“Hesturinn hefur enga útgeislun!” sagði viðmælandi minn og einn af stórknöpum landsins. Hann var að lýsa stóðhesti, sem ég var að velta fyrir mér að nota, með fyrrgreinum orðum. Mér fannst gæta ákveðinnar mótsagnar hjá vini mínum í raddblæ hans og ...
Meira | Umræður(0)
|
8. júní 2008 | Pistill
Að fá hátt fyrir fet
Hestur er talinn feta vel þegar hann fetar meðalreistur og spennulaus, frjáls í hreyfingum, með sókn áfram í ferðastefnu, með jafna niðurkomu fóta, stígur með afturfæti vel fram fyrir framfótarspor og spyrnir sér áfram með afturfótum. Þannig fet fæ...
Meira | Umræður(0)
|
26. maí 2008 | Pistill
Hrossa- og hestasótt
“Og hefur þú áhuga á hestum?” spurði ég unga snót sem kom með foreldrum sínum í heimsókn til að líta á framvindu tamingar á ungum hesti í þeirra eigu. “Já, já, hún hefur það. Hún er heltekin af hrossasótt.” svaraði móðirin að bragði fyrir táningin...
Meira | Umræður(0)
|
18. maí 2008 | Pistill
Að fara á bak
“Endurtaktu þetta í hvert skipti sem þú ferð á bak. Hesturinn lærir þá að standa kyrr og bíða eftir þér.” sagði reiðkennarinn við mig. Ég sat á lötum og stórum reiðkennsluhesti af útlendu kyni og hlustaði á minn meistara sem hélt áfram með lesturi...
Meira | Umræður(0)
|
12. maí 2008 | Pistill
Ónýtur hestur
“Magnús! Hesturinn er ónýtur. Þú hlýtur að sjá það sjálfur.” sagði eigandi hestsins við mig argur og andstuttur. “Hvað áttu við?” spurði ég eigandann óöruggur með mig þar sem ég stóð og hélt í ónýta hestinn eftir að hafa sýnt eigandanum skemmdirna...
Meira | Umræður(0)
|
28. apríl 2008 | Pistill
Að hvetja hest
Ábendingar er fínt og algengt orð yfir hvers konar áreiti sem notað er til að hafa áhrif á stefnu, hraða og gangtegund hests þegar honum er riðið eða unnið er með hann frá jörðu. Áreitið eða ábendingin, sem fá hest til að fara hraðar eða viðhalda h...
Meira | Umræður(1)
|
27. apríl 2008 | Pistill
Frekja
“Hann er svo frekur.” úskýrði röddin í símanum þegar ég spurði hvað væri að hestinum, sem eigandi raddarinnar vildi að ég lagaði fyrir sig. “Hann veður yfir mig þegar ég er að teyma hann og svo stendur hann ekki kyrr þegar ég er að fara á bak honum....
Meira | Umræður(0)
|
13. apríl 2008 | Pistill
Hjálmur
“Þeir nota hjálm sem eitthvað hafa að verja.” er gjarnan mitt viðkvæði þegar einhver mætir í reiðtíma hjálmlaus hjá mér og vill komast upp með það. “Ef þú hefur ekkert að verja þá hefur þú ekkert hér að gera því þú getur þá ekki lært.” bæti ég gjar...
Meira | Umræður(1)
|
8. apríl 2008 | Pistill
Vilji
“Vilji er allt sem þarf.” sagði genginn stjórnmálamaður á síðust öld. Hann var að herða okkur samlanda sína upp og fá þá til að hætta að vola um slæmt ástand í þjóðfélgasmálum. Fá þá til að bretta upp ermarnar og taka til hendinni við að breyta ás...
Meira | Umræður(0)
|
31. mars 2008 | Pistill
Að bjarga íslenskri hrossarækt
Það þykir oft árangursríkt að fá skoðanir eða sjónarmið frá aðilum sem standa fyrir utan hringiðu hverrar greinar eða eru nýir í greininni. Þeir eru ekki heftir af skoðunum annarra í greininni eða viðteknum venjum. Þeir sjá hlutina öðruvísi, spyrj...
Meira | Umræður(0)
|
23. mars 2008 | Pistill
Hvar á botninn að vera?
“Af hverju er beygir andskotans hesturinn svona illa.” kvartaði vinur minn pirraður þegar hann var að undirbúa hestinn sinn fyrir sniðgangsæfingu með því að ríða bauga. “Ég sný mér í samræmi við beygjuna eins og þú kenndir mér. Hvað er að?” hélt h...
Meira | Umræður(7)
|
17. mars 2008 | Pistill
Fimiæfingar - til hvers?
Ég tel mig ekki hafa nokkurt vit á fimleikum manna og get sjálfur fátt gert af því sem þeir fremstu geta gert þegar þeir eru að sýna sig. Hins vegar horfi ég á fimleika í sjónvarpinu nánast hvenær sem boðið er upp á slíkan atburð þar. Ég dáist að ...
Meira | Umræður(0)
|
10. mars 2008 | Pistill
Óheppileg tímasetning og stuttur fyrirvari
Hestaíþróttadómarar hafa verið boðaðir á tveggja daga samræminganámskeið í ár, annað í byrjun apríl og hitt síðar í mánuðinum. Aðeins þeir, sem mæta á annað hvort námskeiðið, eru löglegir dómarar og mega dæma á hestaíþróttamótum árins 2008. Svo kv...
Meira | Umræður(0)
|
17. febrúar 2008 | Pistill
Að ljúga
Maðurinn telur sig vera öðrum dýrum æðri. Hann hefur sjálfsvitun sem aðrar dýrategundir hafa ekki að því talið er. Hann hefur rökhugun sem talið er að aðrar dýrategundir hafi ekki eða a.m.k. hafi af mjög skornum skammti. Hann er talinn hafa mun mei...
Meira | Umræður(0)
|
11. febrúar 2008 | Pistill
Að éta vandann
“Þetta er mannát!” hrópaði ameríska snótin upp yfir sig með ljótum svip til að leggja áherslu á orð sín. Pistlahöfundur var í matarboði fyrir margt löngu hjá virtum prófessorshjónum í sálar- og atferlisfræði manna og dýra. Þau höfðu marga stúdenta ...
Meira | Umræður(0)
|
3. febrúar 2008 | Pistill
Að vera illt í fótunum
“Mig langaði til að kanna hvort ástæðan fyrir brokkleysi íslenskra hesta stafaði af því að þeim væri illt í fótunum.” sagði danski dýralæknirinn Rikke Mark Schultz í fyrirlestri á menntaráðstefnu FEIF í síðasta mánuði. Hún þekkir mjög til hesta og...
Meira | Umræður(3)
|
28. janúar 2008 | Pistill
Fulltaminn hestur?
“Það tekur um 1800 klukkustundir að fullþjálfa hest til að taka þátt í Grand Prixmóti.” sagði Hasse Hoffman einn þekktasti dressúrþjálfari og –kennari Dana á menntaráðstefnu FEIF í Danmörku um síðustu helgi. Hann átti við þann tíma sem fór í taming...
Meira | Umræður(0)
|
21. janúar 2008 | Pistill
Ónýtt brokk?
“Þetta brokk í hestinum er ónýtt því það er algerlega ónothæft til að byggja hestinn upp líkamlega eins og það er.” sagði Morten Thomsen, danskur dressúrreiðmaður og Ólympíufari Dana í dressúr, á menntaráðstefnu FEIF um síðustu helgi. Hann var einn ...
Meira | Umræður(0)
|
13. janúar 2008 | Pistill
Fortamningar unghrossa fyrir útflutning
Það er að aukast mikið að kaupendur ungra hrossa, þ.e. tryppa vilji fá hrossin meðhöndluð áður en þau eru send út, það auðveldar að sjálfsögðu alla umönnun þeirra á leiðinni, og það sem er ekki síður mikilvægt, að álagið á hrossin út af flutningnum ...
Meira | Umræður(0)
|
13. janúar 2008 | Pistill
Hestasala byrjar líflega á árinu
Það virðist alltaf vera markaður fyrir falleg og góð, vel ættuð hross. Góð tamning er svo lykillinn og þá er nánast alltaf auðvelt að selja hrossið. Á morgun fara héðan þrjú hross og öll með sömu vélinni til Svíþjóðar. Hríma er hryssa á fjórða ve...
Meira | Umræður(0)
|
13. janúar 2008 | Pistill
Að gefa einkunnir í íþróttakeppni
Keppnisreglur í hestaíþróttum hafa a.m.k. tvenns konar markmið. Annar vegar að meta frammistöðu knapa og hests við að framkvæma skilgreind verkefni og hins vegar að hafa áhrif á reiðmennsku knapans og þar með hvernig reiðmennsku við viljum sjá alme...
Meira | Umræður(1)
|
6. janúar 2008 | Pistill
Er íslenski hesturinn öðruvísi?
Ég lærði það mjög ungur að íslenski hesturinn hefði ákveðna sérstöðu meðal hesta heimsins vegna þess að hann væri eini hesturinn í heiminum sem tölti. Gömlu jálkarnir, sem við krakkarnir fengum undir rassinn, töltu ekki heldur brokkuðu ef þeir voru ...
Meira | Umræður(0)
|
31. desember 2007 | Pistill
Mér er málið skylt
DVD diskur með nafninu 9,5 -10 fyrir hæfileika og undirtitlinum Ræktunarmarkmið íslenska hestsins kom út fyrir jólin. Hann er unninn í samráði við Félag hrossabænda af plúsfilm og er bæði á íslensku og ensku. Sagt er utan á framhlið hulsturs að þet...
Meira | Umræður(1)
|
23. desember 2007 | Pistill
Jólamatur Skjóna
Það er þjóðlegur siður að gera betur við sig í mat og drykk um jólin en hversdags. Allir borða þá mat, sem þeir eru óvanir að borða, nema á sérstökum tyllidögum og flestir borða meira magn en þeir gera venjulega. En eigum við að gera það sama við h...
Meira | Umræður(0)
|
17. desember 2007 | Pistill
Nokkur orð um stökk
“Er hann latur?” spurði eigandi hestins og röddin vottaði fyrir vonbrigðum. “Nei, alls ekki!” svaraði ég að bragði. “Mér finnst hann vera frekar viljugur.” bætti ég við til að koma folanum á fyrri stall vona. “Er eitthvað að?” spurði eigandinn enn ...
Meira | Umræður(0)
|
17. desember 2007 | Pistill
Meira um stökk
Hugsum okkur hest á stökki og einbeitum okkur að hreyfingum framfóta hans til að byrja með. Þá sést að framfætur hans snerta jörð á misjöfnum tíma. Sá framfótur, sem fer lengra fram og snertir jörð seinna í skrefinu, er kallaður leiðandi fótur og ...
Meira | Umræður(0)
|
2. desember 2007 | Pistill
Af spurningum og svörum
“Ég hef verið duglegur að lesa pistlana þína. Þar veltir þú ýmsu fyrir þér en aldrei kemur svar. Og alltaf endarðu svo pistlana á spurningu. Væri ekki tilbreyting að gefa okkur svar?” fékk ég í bréfi um daginn frá einum nemanda mínum, góðum íslensku...
Meira | Umræður(0)
|
25. nóvember 2007 | Pistill
Erfiðar spurningar?
“Heimskt er heimaalið barn.” sagði íslenskukennarinn okkar í 6X og vitnaði með því í gamlan íslenskan málshátt. “Sá, sem elst upp heima og fer aldrei neitt út fyrir túngarðinn, skortir oft þekkingu og víðsýni og er því heimskur. Hann þarf ekki að v...
Meira | Umræður(0)
|
19. nóvember 2007 | Pistill
Er reiðmennska einföld eða flókin?
“Það sem gerir reiðmennskuna flókna er hversu einföld hún er. Flestir vilja líta út fyrir að vera gáfaðir og gera því hlutina flókna bæði fyrir sér og öðrum til að sýnast gáfaðir.” sagði dressúrreiðkennarinn minn við mig eitt sinn þegar ég spurði h...
Meira | Umræður(0)
|
11. nóvember 2007 | Pistill
Líkamleg þjálfun II - Þol
Þolþjálfun hests byggist á því að hækka loftfirrða þröskuld hans. Til að hækka hann þarf að auka líkamlegt álag hests frá vanabundnu álagi nokkrum sínnum í viku a.m.k. hálftíma í einu til að líkami hans skilji að álagsbreytingin er komin til að ver...
Meira | Umræður(0)
|
4. nóvember 2007 | Pistill
Líkamleg þjálfun I - Þol
Áramót eru fyrir marga tími heitstrenginga og fagurra loforða um bætt líferni, betra útlit og þar af leiðandi betri tíma. Við erum nefnilega þá oftast orðin leið á okkur sjálfum því við höfum þá venjulega étið of mikið og hreyft okkur of lítið í la...
Meira | Umræður(0)
|
30. október 2007 | Pistill
Höfuðburður
Hvernig hestur ber höfuð og háls í reið gerir oftast útslagið hvort viðkomandi hestur hugnist þeim sem á horfir. Þá er venjulega horft til hversu hátt höfuð er borið miðað við lend hests, hver er lögun háls, hver er setning háls, hver er stefna nef...
Meira | Umræður(0)
|
22. október 2007 | Pistill
Afsökun eða útskýring á vanhæfni?
“Is this story of yours an excuse or explanation? sagði reiðkennarinn skýrt við mig en fremur áhugalítill um efni míns málflutnings. Ég stamaði á minni bjöguðu ensku að ég væri að reyna að gera það sem hann væri að kenna mér. Við vorum saman þrír...
Meira | Umræður(0)
|
22. október 2007 | Pistill
Af prúðleika hesta og manna
“Vex ekki faxið meira ef við snoðum tryppin alveg?” spurði eigandi nokkurra tryppa mig vongóður um jákvætt svar þar sem við stóðum saman og vorum að velta fyrir okkur framtíðarhlutverki þeirra. “Ég hef heyrt að þetta gamla húsráð hafi verið notað m...
Meira | Umræður(0)
|
22. október 2007 | Pistill
Að opna og loka hliðum
Ég var tekinn á beinið um daginn og hundskammaður eins og sagt var í mínu ungdæmi. Þegar maður var skammaður eins og hundur þá hafði maður gert eitthvað verulega alvarlegt af sér og mátti þakka fyrir að vera ekki hýddur.
Ég var á hestaferðalag...
Meira | Umræður(0)
|
22. október 2007 | Pistill
Af líkamlegu jafnvægi
Þegar maður missir jafnvægið þá dettur maður flatur ef ekki næst aftur í jafnvægið áður en skellurinn kemur. Manni er hættara við að detta eftir því sem við förum hraðar yfir og eins ef ójafnt er undir fæti eða þegar stuggað er við manni og undirsta...
Meira | Umræður(0)
|
23. september 2007 | Pistill
Hvað er dýr tamning?
“Ég er hættur við að senda folana í tamningu til þín!” sagði röddin í símanum. “Þeir þurfa ekki svona dýra tamningu því þeir eru ekki undan 1. verðlauna hrossum” bætti röddin við til útskýringar. Ég varð hálf hvumsa við því ég hafði aldrei heyrt þ...
Meira | Umræður(0)
|
17. september 2007 | Pistill
Að setja hest á rassgatið!
“Settu hann bara á rassgatið!” er ráð, sem birtist oft í tímaritum og á vefsíðum hestamanna, til þeirra sem eru í einhverju basli með að töltsetja hest og ríða hægt tölt. Pistill þessi verður um hvað þetta þýðir í raun og hvað þarf til að hestur fa...
Meira | Umræður(0)
|
9. september 2007 | Pistill
Að taka við hesti úr tamningu
“ Þetta verður allt í lagi.” sagði eigandi hests öruggur með sig þegar ég var að segja syni hans, rúmlega tvítugum, til hvernig ég riðið hestinum, sem ég hafði verið með í taminginu í marga mánuði. “Strákurinn er öllu vanur. Þú þarft ekki að hafa no...
Meira | Umræður(0)
|
8. september 2007 | Pistill
Að fóðra hest fyrir og í þolreið
Þolreið á hestum er vinsæl keppnisgrein og mikið stunduð víðs vegar um heim. Algengar þolreiðarvegalengdir eru frá 48 km, sem er riðin á einum degi, upp 160 km sem eru þá riðnir á tveim dögum. Sá, er kemur fyrstur í mark, vinnur þolreiðina og stun...
Meira | Umræður(0)
|
29. ágúst 2007 | Pistill
Viðhorf við mótlæti
“Ég er örvhentur!” svaraði hermaðurinn spurningu fyrirlesarans og andlitið ljómaði af lífsgleði. Hermaðurinn var ásamt félögum sínum í endurhæfingaprógrammi til að jafna sig á andlegum og líkamlegum áföllum sem þeir höfðu orðið fyrir í Íraksstríðin...
Meira | Umræður(0)
|
19. ágúst 2007 | Pistill
Hver er ábyrgur?
“Taktu þann gráa!” sagði vinur minn á íslensku við þýskan túrista í hestaferð og otaði beisli að honum til að leggja við Grána. Það var verið að deila út hestum að morgni í byrjun hestaferðar sem var farin á sokkabandsárum skipulagðra hestaferða fy...
Meira | Umræður(2)
|
19. ágúst 2007 | Pistill
Hvað virkar til að stjórna hesti - II hluti
Í síðasta pistli var fjallað um hvernig hestur getur notað bragð- og lyktarskyn, sjón og heyrn til að greina skilaboð frá knapa um hraða, stefnu og gangtegund. Núna verður nokkrum orðum eytt í snerti- og jafnvægisskyn hests við stjórnun hans.
...
Meira | Umræður(0)
|
9. ágúst 2007 | Pistill
Hvað virkar til að stjórna hesti - I hluti
Reiðmennsku má skilgreina sem þá tækni sem knapi notar til að stjórna hesti. Tæknin byggist í hvert sinn á skilningi og færni knapa að senda skilaboð til hests um það sem knapi vill að hestur geri annars vegar og hins vegar hversu vel hestur greini...
Meira | Umræður(0)
|
9. ágúst 2007 | Pistill
Berðu úr honum frekjuna maður!
“Magnús! Bíddu, ég þarf að tala við þig! heyrði ég hrópað í hestaferð sem ég fór fyrir nokkru. Röddin tilheyrði engum úr mínum ferðahóp heldur úr hóp sem við vorum að mæta. Hún hljómaði kunnuglega og þegar nær dróg þá sá ég að ég þekkti eiganda rad...
Meira | Umræður(0)
|
22. júlí 2007 | Pistill
Að kemba hesti
“Áttu kærasta?” spurði ég unga snót þar sem hún kembdi hesti sínum í ákafa. Hún játti því en af svip hennar sást að hún skildi ekki tilgang spurningarinnar. Við hittumst stundum í hesthúsi þar sem við leigðum aðstöðu fyrir okkar hesta þegar við un...
Meira | Umræður(0)
|
16. júlí 2007 | Pistill
Eyru heyra
Hestar greina hljóð með eyrunum eins og við mennirnir. Ytri eyrun safna hljóðunum saman og beina þeim inn í hlustirnar og inn í innri eyrun þar sem þau eru greind í sundur. Hestar geta hreyft eyrunum óháð hvort öðru og geta þannig náð hljóðum úr m...
Meira | Umræður(0)
|
9. júlí 2007 | Pistill
Nú skal kennt sem aldrei fyrr!
Ég man þá tíð að annað hvort varstu hestamaður eða ekki. Þú hafðir það í blóðinu. Að hafa eitthvað í blóðinu þýddi að maður var gerður á einhvern ákveðinn hátt allt frá fæðingu til dauðadags og ekkert gat breytt því. Nú höfum við komist að því að ...
Meira | Umræður(1)
|
2. júlí 2007 | Pistill
Af horuðum og feitum hrossum
Sagan okkar segir að fólk og búfénaður á Íslandi hafi fallið úr hor af og til allt frá Landnámi til vorra daga. Viðvarandi skortur á mat og fóðri olli því að líkamlegir og andlegir sjóðir manna og dýra tæmdust og lífsneistinn fjaraði út. Ef margt...
Meira | Umræður(0)
|
2. júlí 2007 | Pistill
Hverjir eru bestir?
“Auðvitað erum við Þjóðverjar bestir í dressúr, annað væri ekki mögulegt” svaraði þýskur stórhestareiðmaður og –þjálfari mér að bragði þegar ég spurði hann spurningarinnar sem er heiti pistilisins. Mér fannst hann svara mér svo umhugsunarlaust að þ...
Meira | Umræður(0)
|
17. júní 2007 | Pistill
Að skamma dómarann
“Þið ættuð að skoða ykkar gang í dómstörfunum og jafnvel íhuga alvarlega að skipta um starf.” sagði framámaður íslenskrar hrossaræktar og ráðgefandi í stefnumótun greinarinnar við hóp kynbótadómara þegar þeir voru við dómstörf fyrir nokkru. Hann h...
Meira | Umræður(0)
|
11. júní 2007 | Pistill
Nokkur orð um hnakk
Húsdýravæðing hestsins byrjaði að því talið er fyrir 6000 árum með því að nota hann sem burðardýr og til matar. Síðar datt einhverjum í hug að það væri léttara að láta hestinn halda á sér á ferðalögum en að ganga með hann í taumi og láta hann einu...
Meira | Umræður(0)
|
4. júní 2007 | Pistill
Frammistaða?
Vorið og fyrripartur sumars er háannatími hestamanna í því að sýna bæði sér og sérstaklega öðrum árangur vetrarstarfsins í þjálfun sinna hrossa. Fólk á öllum aldri er að keppa, allt frá pollum upp í heldri menn. Það finnur sér keppnigreinar eftir ...
Meira | Umræður(0)
|
28. maí 2007 | Pistill
Að taka upp fætur á hesti
Það er almenn vitneskja að hesturinn er flóttadýr. Vitað er að hann flýr af hólmi ef hann er hræddur, en hræðslan getur verið allt frá því að hestur er lítilsháttar óöruggur með sig upp í það að vera sturlaður af ótta. Það gildir einu á hvaða stig...
Meira | Umræður(0)
|
21. maí 2007 | Pistill
Hvað meinar þú?
“ This is a good hoof” sagði Ingimar Sveinsson, fyrrverandi kennari á Hvanneyri, við stóran hóp erlendra áhugamanna um íslenska hrossrækt á alþjóðlegri hrossaræktarráðstefnu, sem haldin var á Hólum 1989 á vegum FEIF. Hans starfi á ráðstefnunni var ...
Meira | Umræður(4)
|
14. maí 2007 | Pistill
Hvað er rýmd?
Að geta farið hratt á hesti, þegar þess er óskað, þykir góður kostur. Hraði hests ræðst af tvennu, skrefstærð hans og fjölda skrefa (tíðni skrefa) sem hestur tekur á tímaeiningu. Hugsum okkur tvo hesta á hreyfingu, annar hesturinn tekur stór skref...
Meira | Umræður(0)
|
7. maí 2007 | Pistill
Í miðjum klíðum
Sagan segir að fyrstu samskipti milli manns og hests hafi verið þannig að sá fyrrnefndi át hinn. Á þessum nótum voru samskiptin í langan tíma eða þar til fyrir ca. 6000 árum að maðurinn tók hestinn og gerði hann að húsdýri sínu til að hafa af honum...
Meira | Umræður(0)
|
30. apríl 2007 | Pistill
Meiri Meistarakeppni
Meistarakeppni VÍS í hestaíþróttum er margþætt og hugvitssamlega saman settt keppni með því markmiði að gera hana bæði spennandi og skemmtilega frá upphafi til enda. Það hefur tekist og til LUKKU með það. Sem áhorfanda langar mig að nefna nokkur a...
Meira | Umræður(0)
|
23. apríl 2007 | Pistill
Til hvers kynbótadómar og kynbótamat
Á stórum fundi hrossaræktenda á Suðurlandi í vetur koma ítrekað fram að menn sögðust ekki nota kynbótamatið víð sína hrossarækt. Kynbótamatið væri skemmtilegt yfirlit yfir dóma hrossa en gangnaðist þeim ekki sem verkfæri við hrossaræktina. Hins ve...
Meira | Umræður(0)
|
16. apríl 2007 | Pistill
Hvenær er taumsamband?
‘Slaktauma tölt er bara fyrir aula og útlendinga, sem ekki geta riðið almenninlegt tölt’. Þessi fullyrðing kom úr munni framámanns í hestaíþróttasportinu á fræðuslufundi um hestaíþróttir á fyrstu tilvistar árum slaktauma töltsins. Nú hefur þessi v...
Meira | Umræður(0)
|
8. apríl 2007 | Pistill
Hvernig stoppar hestur?
Sagt er að öfundarmenn Kristófers Kólumbusar Ameríkufinnara hafi í veislu, sem spænsku konungshjónin héldu KK eftir sigurförina til Ameríku, baktalað hann fullum rómi þannig að allir veislugestir tóku eftir. Þeir sögðu m.a. að finna Ameríku hafi nú...
Meira | Umræður(0)
|
1. apríl 2007 | Pistill
Að setja upp hestagleraugun
Ég hlustaði á fyrirlestur um daginn um siðfræði þar sem fyrirlesarinn talaði um að hver einstaklingur sæi umhverfið með sínum gleraugum. Gleraugu manna væru mismunandi að gerð og engin eins því ýmsir þættir hefðu áhrif á gerð þeirra, s.s. menntun, ...
Meira | Umræður(0)
|
19. mars 2007 | Pistill
Tilfinningabankareikningurinn
Ég er hrossatemjari að atvinnu og margir hossaeigendur senda sín hross til mín í tamingu. Hrossin koma því á stað sem þeim er ókunnur og framandi alveg eins og ég er þeim. Það er eðlilegt að venjulegur ótaminn hestur sé hræddur við mig í byrjun ...
Meira | Umræður(0)
|
14. mars 2007 | Pistill
Konuhestur
Ég sá auglýsingu á netinu um daginn sem er nú í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, en hún kom mér samt til að hugsa. Hún hljóðaði eitthvað á þá leið að viðkomandi vantaði “konuhest.” Svo kom lýsingin á þessum konuhesti, og hann átti að vera v...
Meira | Umræður(0)
|
13. mars 2007 | Pistill
Misstyrkur hjá hrossum - Hvað er það?
Ég bauð manni nokkrum í sjómann fyrir nokkrum dögum og gaf honum sjálfdæmi um hvor hendin, vinstri eða hægri, yrði notuð við aflraunina. Maðurinn er gamansamur að eðlisfari og sagist ekki þora, en ef hann þyrði þá myndi hann nota hægri hendina því ...
Meira | Umræður(0)
|