• Forsíða
  • Pistlar
  • Fréttir
  • Hestar til sölu
  • Reiðhestar
  • Keppnishestar
  • Ræktunarhross
  • Hrossarækt
  • Stóðhestar
  • Hryssur
  • Tryppi
  • Tamningar og þjálfun
  • Fortamningar / unghrossamat
  • Frumtamningar
  • Þjálfun
  • Myndasöfn
  • Kennsla
  • Verknám
  • Reiðkennsla
  • Hnakkar til sölu
  • Um okkur
  • Magnús Lárusson
  • Svanhildur Hall
  • Heimasæturnar
  • Verðskrá
  • Tamningar
  • Fóðrun
  • Kennsla
  • Hafa samband
  • Alfur_fra_selfossi
Íslenska Íslenska  English
Senda fyrirspurnPrentaStór leturstærð Eðlileg leturstærð Leita
Forsíða >>  Kennsla
Bæði Svanhildur og Magnús hafa áralanga reynslu í að kenna allt í sambandi við hross, bæði hluti tengda reiðkennslu og hrossarækt.  Magnús hefur haldið námskeið árum saman víða um Evrópu, t.d. í Hollandi, Englandi, Belgíu, Svíþjóð, Skotlandi og Þýskalandi.  Bæði Svanhildur og Magnús fara reglulega til Bandaríkjanna með fjölbreytt námskeiðahald, en ekki má gleyma kennslunni hér heima á Íslandi sem spannar allt frá einkatímum í reiðkennslu upp í kennslu á háskólastigi í hinum ýmsu greinum hrossaræktar.
Viðamikil menntun bæði Svanhildar og Magnúsar ásamt víðtækri reynslu í reiðmennsku og hrossarækt hjálpar þeim að hjálpa nemendum sínum til að ná sínum markmiðum, hver svo sem þau eru.
Við bjóðum upp á hvers kyns námskeið í hvaða formi sem er, bæði einkatíma, helgarnámskeið eða reglubundnar kennslu dreift á lengri tíma.  Við kennum allt að sex þátttakendum í hóp, en helgarnámskeiðum má hópaskipta og hafa þar með fleiri þátttakendur í heildina.  Hafið samband við okkur og við hönnum námskeið í samræmi við óskir þínar.

Dæmi um vinsæl námskeið:
. Unghrossamat og meðhöndlun unghrossa
. Námskeið um kynbótadóma, bygging og / eða hæfileikar
. Kvennanámskeið, bæði fyrir byrjendur og lengra komnar
. Byrjendanámskeið
. Barna- og unglinganámskeið
. Námskeið í fimiæfingum
. Atferli hrossa og námssálarfræði
Hafðu samband ef þú hefur áhuga á einhverju af þessu eða bara einhverju öðru.  Við veljum saman helgi og gerum alvöru úr þessu.
© Úrvalshestar | Holtsmúli I  | 851 Hella | Sími: 451 2237 | GSM Svanhildur Hall: 659 2237 | GSM Magnús Lárusson: 659 2238 | Netfang: urvalshestar@urvalshestar.is | English
Nýjar myndir
Röskva frá Guðnastöðum Yrsa frá Guðnastöðum
Lilja frá Holtsmúla Andri frá Neðra-Seli
Álfur frá Selfossi
Tamningar og þjálfun
Hnakkar til sölu