|
Breki frá Neðra-Seli, brúnn, IS2007181107
F: Þóroddur frá Þóroddsstöðum FF: Oddur frá Selfossi FM: Hlökk frá Laugarvatni M: Brynja frá Skammbeinsstöðum 1v MF: Starri frá Skammbeinsstöðum MM: Nótt frá Keldudal
Breki er léttbyggður veturgamall foli undan gæðingnum Þóroddi og fyrstu verðlauna hryssunni okkar henni Brynju frá Skammbeinsstöðum. Brynja er m.a. með 9,5 fyrir skeið svo þessi foli á væntanlega eftir að geta tekið til fótanna ef eitthvað er að marka foreldrana. Breki er afar geðgóður og var spakur frá fyrsta degi. Hálsinn er langur og grannur og höfuðið frítt, þessi foli á eftir að skora hátt fyrir byggingu. Breki er alhliða gengur, fór mest á tölti og skeiði sem folald, en notar nú brokkið mest og er orðinn stinnur á því. Ganglagið er því afar lofandi því stökk og fet er líka gott.
Smellið hér til að sjá fleiri myndir
Verð 1 milljón
Hafið samband til að fá fleiri myndir og/eða video
SOLD - SELDUR
|