Kríu keypti Magnús þegar hún var 5v gömul. Hann tamdi hana og sýndi í fyrstu verðlaun árið 1987, þegar það var fremur sjaldgæft að klárhross færu í svo góðan dóm. Kría fékk 9,0 fyrir tölt og hennar sérkenni voru mikill fótaburður og reising. Kría er án efa okkar besta og glæsilegasta hryssa, enda nánast okkar ræktunarmarkmið í hnotskurn, hágeng, rúm og framfalleg. Ekki spillir brúnskjótti liturinn. Margar af okkar helstu ræktunarhryssum eru dætur hennar og eru dótturdæturnar að byrja að koma inn, þannig að Kría mun án efa skilja eftir sig spor. Undan henni hefur einnig komið einn hátt dæmdur 1v stóðhestur (8,39 í aðaleinkunn), Tjaldur frá Hólum sem er nú í Ameríku. Gammur frá Neðra-Seli er einnig 1v stóðhestur sem býr í Finnlandi, og svo hefur þriðja afkvæmið, hún Kráka sem er ræktunarhryssa hér í Holtsmúla einnig fengið góð 1v eða 8,16 í aðaleinkunn.
Svala frá Neðra-Seli f. 2006
F: Stáli frá Kjarri
Karri frá Neðra-Seli f. 2003
F: Forseti frá Vorsabæ
Gammur frá Neðra-Seli f. 2001
F: Víkingur frá Voðmúlastöðum
Erna frá Neðra-Seli f. 1999
F: Hamur frá Laugarvatni
Fugl frá Gauksmýri f. 1998
F: Svartur frá Unalæk
Svartbakur frá Hólum f. 1996
F: Hrafn frá Holtsmúla
Tjaldur frá Hólum f. 1995
F: Kolfinnur frá Kjarnholtum
Kráka frá Hólum f. 1994
F: Orri frá Þúfu
Spæta frá Hólum f. 1993
F: Vafi frá Kýrholti
Assa frá Hólum f. 1992
F: Kolfinnur frá Kjarnholtum
Kría eignaðist þrjú afkvæmi sem ekki eru til myndir af. Hennar fyrsta folald fæddist 1988 og var það brúnskjótt hryssa undan Adam frá Meðalfelli. Þessi hryssa var seld. Þá fæddist grá hryssa árið 1989 undan Gáska frá Hofsstöðum og rauður hestur árið 1990 undan Anga frá Laugarvatni. Bæði þessi hross fórust þegar þau voru tveggja vetra gömul.