Héla er hágeng klárhryssa undan hestinum sem okkur langaði svo í gráa hryssu undan, honum Gusti frá Hóli. Eftir að hafa haldið undir hann í ótal mörg skipti og alltaf fengið hesta, og yfirleitt brúna eða rauða, ákváðum við þegar tækifæri bauðst að kaupa þessa 1v hryssu, sem á það þó ólíkt með föður sínum að það sér varla í hálsinn og höfuðið fyrir faxi. Héla er myndarhryssa á velli, með gott brokk, en frábær á tölti þar sem rýmd og fótaburður ráða ríkjum.