Auður er fylfull við Þristi frá Feti og kastar í apríl 2010.
Það sem einkennir Auði er óvenjulegur myndarskapur og mikil fegurð. Það er sama hvar á hana er litið, tölurnar segja allt en hún er með 8,33 fyrir byggingu. Hún er klárhryssa sem var klárgeng af stað, en töltið gott um leið og það kom og einkennist af miklum fótaburði. Geðslagið er frábært, hún er auðvseip og viljug.