15. júní 2010
Myndatökur
Það er allt snarvitlaust að ger a við að taka myndir af öllum okkar hrossum áður en þeim verður sleppt í víðáttumikla sumarhaga. Málið er að þeim verður sjaldan smalað heim nema að einhver slasi sig eða veikist eftir að þeim er sleppt, og því erum við farin að taka myndir af öllum hrossum snemmsumars til að eiga sem heimild seinna meir. Það er líka gaman í leiðinni að skoða hrossin sín í kyrrstöðu og á hlaupum, og sjá þau þroskast ár frá ári. Venjan er að temja þau í nokkra daga á undan þannig að öll eru búin að læra að teymast og aðra almenna hestasiði, og við búin að kynnast geðslaginu sem er ekki svo lítils virði. Þeim viðskiptavinum sem vilja svona fortamningu á sínum unghrossum fer hratt fjölgandi og er hægt að lesa allt um það hvað gert er við fortamningarhross hér. Einnig bjóðum við upp á það að taka myndir og video af hrossunum sem eigandinn fær svo á tölvutæku formi. Svanhildur náði þessari skemmtilegu mynd af henni Steffi yfirsmala á "fótaburðarbrokki" um daginn þar sem hún geystist um á eftir einhverju hrossinu.
Smellið hér til að lesa um fortamningar
Til baka | Senda á vin
|