9. maí 2009
Móálótt Aronsdóttir fædd
Hún fæddist í gær, og sem betur fer er skjólgott í brekkunni okkar sem snýr að móti suðri. Hún er þrælspræk og gullfalleg, sýnir allan gang. Folald númer tvö er sum sé hryssa undan Aroni frá Strandarhöfði og hryssunni Hyllingu frá Blönduósi. Hylling er hryssa sem er undan Hlökk gömlu frá Hólum, en sú er Feykisdóttir og m.a. móðir stóðhestsins fræga Hryms frá Hofi. Hún Selma vinkona okkar og eigandi Hyllingar lánaði okkur hana til að fá undan henni eitt folald.
Til baka | Senda á vin
|
|